Meistarasviti

Meistaramánuðurinn 2011

Þann 22.október fer átakið Meistaramánuðurinn 2011 í gang. Þessi síða er í raun höfuðstöðvar átaksins og mun koma til með að aðstoða og hvetja þátttakendur áfram í baráttunni. Meistaramánuðurinn telur 30 daga sem munu ögra þátttakendum líkamlega og andlega í átt að því að verða meistarar eigin lífs. Allir geta tekið þátt og hvetjum við áhugasama eindregið til þess að fá sem flesta með í átakið.


 Með því að setja sér háleit markmið og einblína á þau þá færumst við öll nær því að verða betri manneskjur. Meistaramánuðurinn felst því í því að þátttakendur vakna fyrr, hreyfa sig, ásamt því að borða og njóta lífsins betur en aðra daga. Við leggjum upp með að fólk skori á sjálft sig og leitist við að sigra raunir hversdagsleikans. Lagt er upp með að þátttakendur neiti sér um áfengi þessa 30 daga og innbyrði fyrst og fremst fæðu sem er mannslíkamanun holl. Með því að vakna fyrr munu þátttakendur koma fleiru í verk heldur en náunginn. Þar af leiðandi líður þátttakenda eins og meistara, þú hefur jú sigrað samborgara þína og sjálfan þig.   

Markmið Meistaramánaðarins er að þátttakendur skori sjálfan sig á hólm. Þegar þú hefur ákveðið að taka sjálfan þig í gegn þá er mælt með að þú skorir á félaga þína að taka þátt með þér. Strúktúr, skipulagning og hagnýting tíma er eitthvað sem við getum öll bætt okkur í.  Meistaramánuðurinn er skapaður til þess að taka á þessum málum. 

Látum okkur líða vel, sigrum lífið, lifum eins og meistarar.

More Information